| 1 |
Meginmarkmið DRA er að bera boðskapinn um bata til karla og
kvenna sem þjást af tvíþættri truflun. |
| 2 |
DRA hefur tvö inntökuskilyrði: Löngun til að hætta
að drekka áfengi og nota aðra vímugjafa, og löngun
til að hafa stjórn á tilfinningalegum eða geðrænum
sjúkdómi okkar á heilbrigðan og uppbyggjandi hátt. |
| 3 |
Við bjóðum fólk velkomið, hverrar trúar
sem það er. Framkvæmdaáætlun okkar býður
upp á persónulegt frelsi og frelsi til að velja. |
| 4 |
Deildir okkar og þjónustustarf byggja á meginreglum tólf
reynsluspora DRA. |
| 5 |
Hver deild er sjálfstæð svo að betur sé hægt
að þjóna bataþörfum félaga okkar. Við
tökum tillit til velfarnaðar og einingar allra deilda og DRA í
heild. |
| 6 |
Til að viðhalda meginmarkmiði okkar forðumst við allar
utanaðkomandi truflanir. Við þurfum ekki að vera viðriðin
fjármálavafstur, lána nafn DRA utanaðkomandi starfsemi
og málefnum eða dragast inn í opinber mál. |
| 7 |
Sérhver deild ætti að vera fjárhagslega sjálfstæð. |
| 8 |
DRA eru sjálfshjálparsamtök sjálfboðaliða.
Til þess að inna af hendi þjónustustarf okkar megum við
ráða sérstakt starfsfólk, mynda nefndir og skipuleggja
verkefni. |
| 9 |
Einstaklingsbundinn tvíþættur bati okkar veltur á
einingu DRA. Við berum áfram boðskapinn í gegnum persónulegan
bata okkar og þjónustustörf. |
| 10 |
DRA eru samtök áhugamanna. Við bjóðum ekki upp
á þjónustu á sviði efnafíknar, geðheilsu
eða annarrar félagsþjónustu. DRA hefur enga skoðun
á réttri notkun lyfja eða öðrum aðferðum
til að stjórna einkennum okkar. |
| 11 |
Í DRA tökum við sameiginlega þátt í
tvíþættum bata. Erfðavenjur okkar og þjónustustarf
hjálpar okkur að viðhalda heilindum framkvæmdaæáætlunarinnar,
að sjá fyrir öðrum og að styrkja einingu DRA heildarinnar. |
| 12 |
Persónuleg nafnleynd er réttur allra DRA félaga. Við
ástundum nafnleynd á vettvangi fjölmiðla. |
[Prentvæn útgáfa]
Page Updated February 29, 2004 |
|


|